Breytingar á áfengisgjaldi munu valda stórhækkun á áfengisverði og auka tekjur ríkissjóðs verulega.

Fyrirhugaðar breytingar á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti á áfengi munu hafa í för með sér stórfelldar verðhækkanir á áfengi, að óbreyttu. Einnig munu tekjur ríkissjóðs aukast verulega, en ekki standa í stað eins og haft hefur verið eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum.   Þetta er mat forvarsmanna Ölgerðar Egils Skallagrímssonar sem vara við þessum hugmyndum, eins og þær liggja fyrir nú.

 

Rætt er um að hækkun á áfengisgjaldi eigi að vega á móti lækkun virðisaukaskatts í 7% svo tekjur ríkisins standi í stað. Fyrirhuguð hækkun gerir þó gott betur enda er afleiðingin sú að verð á öllum tegundum áfengis mun hækka verulega sem munu færa ríkissjóði auknar tekjur sem mælast í milljörðum. Meðfylgjandi tafla sýnir þær breytingar sem verða á verði algengra tegunda af áfengi, nái þær tillögur fram að ganga sem nú er rætt um á þingi.

 

 

Tegund                                   Verð nú          Nýtt verð        Hækkun

 

Smirnoff 1 l                             4.250               5.410               27,3%

Brennivín 70 cl                        3.290               4.140               25,8%

Rosemount rauðvín 3l kassi    4.190               4.850               15,8%

Wolf Blass rauðvín 75cl          1.490               1.593                 6,9%

Opal vodkaskot                       3.290               3.720               13,1%

Grand Marnier líkjör               4.260               4.980               16,9%

Egils Gull 0,5 l                           199                  228               14,6%

 

Þessar verðbreytingar miðast við að virðisaukaskattur fari í 7% og áfengisgjald (vínandagjald) hækki um 58% eins og lagt er til í frumvarpi fjármálaráðherra.

 

Ölgerðin hvetur ráðamenn til að endurskoða þá hækkun sem verði á áfengisgjaldi í kjölfar lækkunar á virðisaukaskatti svo gjaldheimta standi í stað í heildina litið.

 

---

Nánari upplýsingar:

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.

Sími: 580 9000