Um Ölgerðina
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. er sölu- og markaðsfyrirtæki á sviði drykkjarvara. Fyrirtækið framleiðir, flytur inn, markaðssetur og dreifir úrvali drykkja sem uppfylla ólíkar þarfir viðskiptavina. Ölgerðin var stofnuð 17. apríl 1913 og hefur lengst af verið rekið sem fjölskyldufyrirtæki. Árið 2002 keypti Lind ehf., dóturfyrirtæki Danól ehf., Ölgerðina en samruni fyrirtækjanna tók formlega gildi 11. janúar 2003. Við sameininguna jókst fjölbreytni í starfsemi Ölgerðarinnar verulega.
Sölu- og markaðsfyrirtæki
Ölgerðin er starfrækt sem öflugt sölu- og markaðsfyrirtæki sem býður heildarlausnir á drykkjarvörumarkaði og setur neytandann í öndvegi. Í dag selur Ölgerðin gosdrykki, bjór, léttvín, sterkt vín og vatn og hefur það ávallt að markmiði að vera í fararbroddi á markaði fyrir drykkjarvörur.
Mannauður
Stjórnendur Ölgerðarinnar líta svo á að starfsmenn séu lykillinn að velgengni fyrirtækisins. Hjá Ölgerðinni starfa um 150 manns með víðtæka þekkingu, menntun og reynslu. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og að dreifa ábyrgðinni meðal starfsmanna í því skyni að tryggja hraða og sveigjanleika í rekstrinum.
Öflug vöruþróun
Ölgerðin er með 5-600 vörunúmer, bæði eigin framleiðslu og innfluttar vörur. Neytendur verða hins vegar sífellt kröfuharðari um gæði og nýjar vörur. Leggur Ölgerðin því áherslu á öfluga vöruþróun sem endurspeglast í fjölda nýrra vara sem fyrirtækið hefur sett á markað á undanförnum misserum. Má þar nefna Kristal Plús, Kristal Sport, Egils Cider og Egils Lite bjór sem unnið hefur til verðlauna í keppnum erlendis.
Jákvæð ímynd
Styrkur Ölgerðarinnar er fólginn í sögunni og þeirri framsækni sem einkennt hefur reksturinn en ekki síður í þeirri jákvæðu ímynd sem fyrirtækið hefur. Ölgerðin hlaut nafnbótina Markaðsfyrirtæki ársins 2002 frá ÍMARK, samtökum markaðsfólks. Viðskiptavinir Ölgerðarinnar voru ánægðastir viðskiptavina þeirra 25 fyrirtækja sem vegin voru í Íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2005 og var það fjórða árið í röð sem Ölgerðin hlaut þá viðurkenningu.
Skipurit
Í stjórn Ölgerðarinnar sitja nú Októ Einarsson, sem stjórnarformaður, Einar Friðrik Kristinsson og Árni Oddur Þórðarson. Forstjóri er Andri Þór Guðmundsson.
Ölgerðinni er skipt upp í sjö svið:
Fjármálasvið – Kristján Elvar Guðlaugsson framkvæmdastjóri
Tæknisvið – Lárus Sigurbergsson framkvæmdastjóri
Sölusvið – Kjartan Páll Eyjólfsson framkvæmdastjóri
Veitingasvið – Friðjón Hólmbertsson framkvæmdastjóri
Markaðssvið – Hörður Harðarson framkvæmdastjóri
Starfsmannasvið – Elísabet Einarsdóttir starfsmannastjóri
Vörustjórnunarsvið - Ásgeir Jónsson framkvæmdastjóri