Markmið, hlutverk og stefna
 
Markmið: Að verða besta sölu- og markaðsfyrirtæki landsins.
 
Hlutverk: Að bjóða upp á heildarlausn á drykkjarvörumarkaði með hágæða vöru og þjónustu.
 
Stefna: Við berum okkur alltaf saman við þá bestu í heiminum, byggjum á gömlum grunni og tileinkum okkur nútímaleg og framsækin vinnubrögð í öllum deildum til hagsbóta fyrir viðskiptavini, neytendur, starfsfólk og eigendur. 
 
 
Gildin okkar
 
Ölgerðin er framsækið fyrirtæki sem starfar á gömlum grunni. Starfsmenn leggja áherslu á eftirfarandi gildi:
 
Þjónustulund
  • Viðskiptavinir okkar eru ávallt í fyrirrúmi. 
  • Við erum sveigjanleg og förum fram úr væntingum viðskiptavina okkar.
  • Þjónusta okkar er stöðug, framúrskarandi og á heimsmælikvarða.
 
Gæði
  • Allar framleiðsluvörur okkar eru fyrsta flokks og því verður aldrei fórnað.
  • Við erum með rétta vöru, á réttum stað, í réttu magni og á réttum tíma
  • Við gerum mistök eins og aðrir – en lærum af þeim.
  • Allt er gæði.
 
Jákvæðni
  • Við höfum gaman að vinnunni og erum jákvæð gagnvart breytingum. 
  • Við viljum hafa gott umhverfi og sýna hvert öðru skilning. 
  • Við notum öll tækifæri til að fagna sigrum í öllum deildum fyrirtækisins.
  • Við erum ein liðsheild og allir leggja sitt af mörkum til að ná markmiðum fyrirtækisins.
  • Við sýnum samstarfsfólki okkar virðingu.
 
Framsækni
  • Við sýnum frumkvæði og þorum að taka áhættu þegar það á við. 
  • Við ætlum alltaf að vera feti framar í þjónustu, nýjungum og vöruúrvali.
  • Við búum yfir krafti, metnaði og eldmóði sem samkeppnisaðilar hræðast. 
  • Við erum fljót að taka ákvarðanir og látum hlutina gerast.
  • Við hugsum alltaf án takmarkana.
                   
Arðsemi
  • Til að lifa af þarf fyrirtækið að vaxa hraðar en samkeppnisaðilar. 
  • Við leitum alltaf hagkvæmustu leiða í innkaupum, framleiðslu og fjárfestingum.
  • Við sýnum ábyrgð og frumkvæði til að bæta reksturinn.
  • Við berum virðingu fyrir vinnuumhverfi okkar og tækjum.
  
Heiðarleiki
  • Við stöndum við það sem við segjum.
  • Við gætum trúnaðar í meðhöndlun upplýsinga.
  • Við höfum hugrekki til að taka á vandamálum áður en þau verða of stór og viðurkennum mistök.
  • Hegðun og framkoma okkar styrkir orðspor fyrirtækisins.
  • Við virðum viðskiptavini okkar og væntum þess að þeir geri það sama gagnvart okkur.