Hvítöl
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hóf framleiðslu á Hvítöli árið 1917 og hefur haldið sömu uppskrift allar götur síðan. 
Langar biðraðir mynduðust fyrir utan brugghús Ölgerðarinnar í desember, þar sem fólk beið fullt eftirvæntingar með fötur og brúsa undir Hvítölið. 
Þá eins og nú eru engin jól án Hvítöls. Hvítölið kemur eingöngu á markað fyrir jól.
 
Hvítöl fæst í 1,25 L plastflöskum.